This Wednesday Wolt hosted a lunchtime discussion in Grandi focused on the evolving gig economy, innovation in urban logistics, and the future of delivery services in Iceland. Several Reykjavík city councillors attended the event, where there was constructive and forward-looking dialogue about how technology can improve everyday life for residents and businesses alike.
Participants discussed the role that platforms like Wolt play in supporting local restaurants and shops, creating flexible earning opportunities, and increasing convenience for consumers. There was broad agreement that innovation in delivery services can contribute positively to the local economy and enhance urban living.
Among the guests were party leaders in the city council, Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir, Pétur Marteinsson, Ari Edwald and Einar Þorsteinsson, along with Wolt courier partner Daníel Guðmundsson from Selfoss, Hjalti Vignus, the founder of burger-chain 2Guys, representing Wolt merchant partners and influencer Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir representing Wolt’s customers.
There was a great deal of consensus among all the leaders that Wolt was positive for both citizens and the business community in Iceland. While there is a clear positive feeling towards the modern gig economy, several politicians also pointed out the need to balance freedom and flexibility with social safety nets.
"We are not all the same or have the same background, so having room for manoeuvre is very positive. However, we need to have that framework as clear as possible so we understand where our rights lie”, said Björg Magnúsdóttir.
A key topic of discussion was how emerging technologies could help address city challenges such as traffic congestion. In that context, city representatives expressed openness to exploring new solutions, including the potential use of drones for deliveries in the future.
One councillor remarked that “they should certainly be able to deliver pizzas to customers at home,” underscoring the view that modern drone technology has significant untapped potential for civilian applications. Another point raised was the opportunity to use technology to “bypass traffic congestion in the city,” helping make deliveries more efficient and environmentally friendly.
“Open dialogue with city leaders is essential as we look at how technology can support more efficient and sustainable urban logistics,” said Jóhann Helgason, Head of Commercial at Wolt Iceland. “We are encouraged by the constructive conversation and the openness to innovation. At Wolt, our focus is always on creating value for local merchants, customers, and courier partners, while working responsibly within the regulatory framework.”
Wolt welcomes the constructive approach taken by city leaders and looks forward to continued collaboration on practical, safe, and sustainable solutions that benefit residents, merchants, and courier partners alike.
As technology evolves, Wolt remains committed to working closely with regulators and municipalities to ensure that any future innovations are implemented responsibly and in line with Icelandic laws and community expectations.
Á miðvikudag hélt Wolt hádegisfund á Granda þar sem rætt var um þróun verkvangshagkerfisins, nýsköpun í afhendingum innan borgarinnar og framtíð heimsendingarþjónustu á Íslandi. Nokkrir borgarfulltrúar í Reykjavík sóttu fundinn og var þar farið í málefnalegt og framsækið samtal um hvernig tæknilausnir geta bætt daglegt líf íbúa og stutt við atvinnulíf.
Rætt var um hlutverk vettvanga á borð við Wolt í að styðja við staðbundna veitingastaði og verslanir, skapa sveigjanleg tekjutækifæri og auka þægindi fyrir neytendur. Almennt var samhljómur um að nýsköpun á sviði afhendingarþjónustu geti haft jákvæð áhrif á borgarlíf og efnahagslíf á staðnum.
Meðal gesta voru oddvitar í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík, Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir, Pétur Marteinsson, Ari Edwald og Einar Þorsteinsson. Þá tóku einnig þátt Daníel Guðmundsson, sendill Wolt frá Selfossi, Hjalti Vignus, stofnandi hamborgarakeðjunnar 2Guys fyrir hönd samstarfsaðila Wolt, og Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir sem talaði út frá sjónarhorni viðskiptavina.
Fram kom að margir gestanna töldu að starfsemi Wolt hefði jákvæð áhrif fyrir bæði íbúa og atvinnulíf. Á sama tíma bentu stjórnmálamenn á mikilvægi þess að jafnvægi sé á milli sveigjanleika og frelsis annars vegar og öryggisnets og skýrs regluverks hins vegar.
„Við erum ekki öll eins og komum úr ólíkum aðstæðum, þannig að svigrúm og valfrelsi skipta miklu máli. Á sama tíma þarf ramminn að vera skýr svo fólk viti hver réttindi þess eru,“ sagði Björg Magnúsdóttir.
Einnig var rætt um hvernig ný tækni gæti hjálpað til við að mæta áskorunum borgarinnar, svo sem umferð og álag á gatnakerfi. Fulltrúar borgarinnar sýndu vilja til að skoða nýjar lausnir, þar á meðal möguleika á notkun dróna til afhendinga í framtíðinni.
Einn borgarfulltrúi orðaði það svo að „þeir ættu auðvitað að geta sent pizzur heim til fólks,“ og vísaði þar til möguleika drónatækni í borgarumhverfi. Þá var bent á að með tæknilausnum mætti „komast hjá umferð“ og þannig gera afhendingar skilvirkari og mögulega umhverfisvænni.
„Opið og heiðarlegt samtal við fulltrúa borgarinnar er lykilatriði þegar við skoðum hvernig tæknin getur stutt við skilvirkari og sjálfbærari afhendingar innan borgarinnar,“ sagði Jóhann Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi. „Við erum ánægð með uppbyggilega umræðu og þann vilja sem sýndur var til að skoða nýjar lausnir. Markmið okkar er alltaf að skapa verðmæti fyrir samstarfsaðila, viðskiptavini og sendla, á ábyrgan hátt og í samræmi við gildandi regluverk.“
Wolt fagnar þeirri nálgun sem fram kom hjá borgarfulltrúum og hlakkar til áframhaldandi samtals um raunhæfar, öruggar og sjálfbærar lausnir sem gagnast íbúum, fyrirtækjum og sendlum.