Wolt partners with the European Transport Safety Council to help make city streets safer for couriers, cyclists and pedestrians

Wolt courier partner in Reykjavik
  • jpg
Wolt courier partner in Reykjavik

The one-year partnership will see Wolt and ETSC work together on how urban road infrastructure affects the safety of people walking, cycling and motorcycling, including the growing number who deliver as cycle couriers, followed by a Europe-wide webinar and an in-person seminar.

Wolt has entered into a one-year partnership with the European Transport Safety Council (ETSC), Europe's leading independent road safety organization, to work together on the safety of people walking, cycling and motorcycling in European cities. The announcement comes during European Mobility Week, which runs from 16 to 22 September.

Pedestrians, cyclists and motorcyclists account for the large majority of road deaths in EU cities, and progress in reducing those deaths has been slow. Over the coming months, ETSC will publish a policy report examining what the evidence shows about protecting them, including junction design, separated cycling infrastructure and speed management.

The report will pay particular attention to people who cycle in cities regularly, including those who deliver as cycle couriers. Couriers are on urban roads more often, and in a wider range of weather and traffic conditions, than most other cyclists, which makes their experience a useful reference point for how cities design and manage their streets.

The report will be followed by a Europe-wide webinar and an in-person seminar, bringing together policymakers, city authorities and road safety experts to discuss the findings and what cities can do with them.

Over the course of the partnership, ETSC and Wolt also intend to explore how the experience of couriers themselves could add to the evidence base. That strand of work is at an early stage and will develop as the partnership progresses.

“Couriers are on city streets every day, and the quality of the infrastructure around them affects their daily experience directly. We want the case for safer street design to be made properly and based on the evidence. That is why we are partnering with ETSC on this work, and why we hope to find ways of contributing what our couriers see and experience as the project develops,” said Jóhann Helgason, leader of Wolt in Iceland.

Jóhann Helgason FEB 2024 Harpa_10 (2).jpg
  • jpg

“Most of the road deaths in European cities involve people walking, cycling or motorcycling, and the design of the street is of critical importance. People who deliver as cycle couriers are on city streets more often than almost anyone else, so they have a particular stake in getting it right. We are glad to be partnering with Wolt on this work, and over the year we hope to find good ways of bringing couriers' own experience into it,” said Antonio Avenoso, Executive Director at ETSC.

ETSC retains full editorial independence over the report. ETSC's most recent Road Safety Performance Index shows that Europe is on track for only half the road-death reduction needed to meet the EU's 2030 target. Wolt already provides couriers with free accident and third-party liability insurance while they are delivering. This partnership is a different kind of contribution: making the evidence-based case for changing the streets themselves.

More details on the policy report, webinar and seminar will follow in the coming months.

The ETSC partnership sits alongside a wider set of road safety initiatives Wolt is running across Europe this Mobility Week. In Germany, Wolt has partnered with DEKRA to launch an e-learning road safety course for couriers, and is holding a courier safety activation day in Cologne during European Mobility Week, handing out safety jackets, helmets, and safety booklets. In Czechia, Wolt has been running a road safety campaign, including a Safety Day, with long-term partner Dám respekt. In Hungary, Wolt co-signed the Budapest Safety Charter with the municipality, setting a framework for joint road safety activities. In Romania, Wolt is partnering with cycling NGO HaiCuBicla on a Bucharest courier safety day, aiming to feed courier input into the city's infrastructure planning. In Greece, Wolt is working with national media partners to raise awareness of road safety. And in several other markets, Wolt is running a dedicated road safety campaign for couriers and the public.

Wolt og European Transport Safety Council í samstarf um öruggari götur

Wolt courier partner in Reykjavik
  • png
Wolt courier partner in Reykjavik

Wolt og European Transport Safety Council (ETSC) hafa hafið eins árs samstarf um öryggi gangandi vegfarenda, hjólreiðafólks og mótorhjólafólks, þar á meðal hjólasendla. Skoðað verður hvernig götuhönnun og aðrir innviðir hafa áhrif á öryggi þeirra. ETSC mun gefa út skýrslu um efnið og í kjölfarið verður haldið evrópskt vefnámskeið og málstofa.

Tilkynnt er um samstarfið í Evrópsku samgönguvikunni, sem stendur frá 16. til 22. september. ETSC eru leiðandi óháð samtök á sviði umferðaröryggis í Evrópu.

Gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjólafólk eru mikill meirihluti þeirra sem látast í umferðinni í borgum Evrópusambandsins. Hægt hefur gengið að fækka þessum dauðsföllum. Á næstu mánuðum mun ETSC birta skýrslu um hvernig megi bæta öryggi þessara hópa út frá fyrirliggjandi gögnum. Þar verður meðal annars fjallað um hönnun gatnamóta, aðskilda hjólastíga og leiðir til að halda umferðarhraða í skefjum.

Sérstaklega verður horft til fólks sem hjólar reglulega í borgum, þar á meðal sívaxandi hóps hjólasendla. Sendlar verja meiri tíma í umferðinni en flest annað hjólreiðafólk og vinna við ólíkar veður- og umferðaraðstæður. Reynsla þeirra getur því nýst við að meta hvernig götur og umferðarskipulag reynast í daglegri notkun.

Eftir útgáfu skýrslunnar verður haldið evrópskt vefnámskeið og málstofa. Þar munu fulltrúar stjórnvalda og borga ásamt sérfræðingum í umferðaröryggi ræða niðurstöðurnar og hvernig nýta megi þær til að gera götur öruggari.

Wolt og ETSC ætla einnig að kanna hvernig reynsla sendlanna sjálfra geti nýst í verkefninu. Sú vinna er enn á frumstigi og verður útfærð nánar á næstu mánuðum.

„Sendlar eru á götum úti á hverjum degi og finna vel fyrir því hvað góðir innviðir skipta miklu máli í starfi þeirra. Við viljum að tillögur um öruggari götur byggist á vönduðum gögnum. Þess vegna förum við í þetta samstarf við ETSC. Við vonumst líka til að reynsla sendlanna okkar geti nýst í verkefninu,“ segir Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi.

Jóhann Helgason FEB 2024 Harpa_10 (2).jpg
  • jpg

„Flestir sem látast í umferðinni í evrópskum borgum eru gangandi, hjólandi eða á mótorhjóli. Hönnun gatnanna skiptir miklu máli fyrir öryggi þeirra. Hjólasendlar verja meiri tíma í umferðinni en nánast allir aðrir og það skiptir þá því sérstaklega miklu að vel sé staðið að þessum málum. Við erum ánægð með samstarfið við Wolt og vonumst til að finna góðar leiðir til að nýta reynslu sendlanna í verkefninu,“ segir Antonio Avenoso, framkvæmdastjóri ETSC.

ETSC hefur fullt ritstjórnarlegt sjálfstæði við gerð skýrslunnar. Samkvæmt nýjustu Road Safety Performance Index-skýrslu samtakanna stefnir í að dauðsföllum í umferðinni í Evrópu fækki aðeins um helming þess sem þarf til að ná markmiði Evrópusambandsins fyrir árið 2030.

Wolt veitir sendlum nú þegar ókeypis slysa- og ábyrgðartryggingu gagnvart þriðja aðila meðan þeir sinna afhendingum. Með samstarfinu við ETSC vill fyrirtækið einnig stuðla að öruggari götum með því að styðja við rannsóknir á því hvaða úrbætur skila árangri.

Nánari upplýsingar um skýrsluna, vefnámskeiðið og málstofuna verða kynntar á næstu mánuðum.

Samstarfið við ETSC er eitt af nokkrum verkefnum Wolt á sviði umferðaröryggis í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna. Í Þýskalandi hefur Wolt hafið samstarf við DEKRA um netnámskeið í umferðaröryggi fyrir sendla. Fyrirtækið heldur einnig öryggisdag fyrir sendla í Köln þar sem öryggisjakkar, hjálmar og fræðsluefni verða afhent. Í Tékklandi hefur Wolt staðið fyrir umferðaröryggisherferð og öryggisdegi með Dám respekt, sem hefur lengi verið samstarfsaðili fyrirtækisins.

Í Ungverjalandi hefur Wolt undirritað Budapest Safety Charter ásamt borgaryfirvöldum í Búdapest um samstarf í umferðaröryggismálum. Í Rúmeníu vinnur Wolt með hjólreiðasamtökunum HaiCuBicla að öryggisdegi fyrir sendla í Búkarest. Markmiðið er meðal annars að nýta ábendingar sendla við skipulag gatna og annarra samgönguinnviða. Í Grikklandi vinnur Wolt með fjölmiðlum að því að auka vitund um umferðaröryggi. Á fleiri mörkuðum stendur fyrirtækið einnig fyrir umferðaröryggisherferðum fyrir sendla og almenning.

Receive exclusive news

Are you a journalist or do you work for a publication?
Sign up and request access to exclusive news.

Request access

Receive Wolt news on your RSS reader.

Or subscribe through Atom URL manually